Smá tjáning frá mér um Söngkeppni Framhaldskólanna árið 2012 !

Jæja nú var ég að koma af fundi hjá Síf í dag og tel ég mig geta tjáð mig um málið opið varðandi söngkeppnina, bæði sem formaður nemendafélags og sem keppandi í keppninni.
Þessi ákvörðun sem nú var tekin er frekar leiðinleg, bæði það með að færa keppnina til Reykjavíkur og hafa undankeppni þar sem einungis 12 skólar komast áfram. Þó er staðan einfaldlega sú að þetta var það eina sem hægt var að gera þar sem keppnin hefur verið mjög ílla sótt seinustu árin.
Með þessu fyrirkomulagi getum við gert Söngkeppni Framhaldsskólanna þvílíkt stóra bæði í sjónvarpi og öllu hinu sem fylgir. Þarna höfum við fyrirtæki sem er til í að gera keppnina virkilega stóra og þá ekki bara í ár heldur næstu árin. Keppendurnir fá miklu meiri umfjöllun en bara 2:30 min í sjónvarpi og vonandi næstu árin verða undankeppnirnar líka sýndar í sjónvarpi, það yrði æði !.
Þetta er stór séns fyrir keppendurna að fá að sýna hvað í þeim býr og næstu árin ennþá stærri þar sem vonandi verður keppnin ekki bara mikil fyrir okkur framhaldskólanema heldur fyrir allt landið.
Ég skil alveg að þetta er ömurlegt og þá sérstaklega þar sem ég er keppandi !, Ég vildi komast í sjónvarpið og svona, en núna er það bara ekki hægt nema að ég komist áfram. Við framhaldskólanemar verðum bara að gera gott úr þessu og treysta á að þetta verði frábært ! það er planið !
Ég hvet alla sem lesa þetta til að hugsa aðeins út í þetta sem heildarmynd. Ég skil að það er leiðinlegt ef skólinn þinn kemst ekki áfram og að hún sé haldin í Reykjavík en ef á næstu árum er búið til þvílíkt flotta keppni með mikilli umfjöllun og miklu áhorfi eigum við þá að neita því vegna þess að við viljum djamma á Akureyri ?
Keppnin er 22 ára í ár og það er um að gera að koma henni uppá næsta level !, Ég ætla að vera jákvæð fyrir þessu og skemmta mér á upptökum á morgun og vonandi getum við hætt að blóta og bölva yfir breytingunum og taka þeim frekar fagnandi.
Hlakka til að sjá ykkur í góðum gír á SÖNGKEPPNI FRAMHALDSKÓLANNA !!
Kær kveðja
Margrét Saga
Kaffihúsakvöld
Á miðvikudaginn verður haldið kaffihúsakvöld hér í skólanum. Það verða skemmtiatriði eins og body paint, söngatriði og svo verða veitingar í boði, gómsætar kökur og gos. Við ákváðum að bjóða 10.bekk að koma til þess að kynna þau betur fyrir skólanum okkar. Endilega komið , þetta verður bara gaman !!
Margrét og Stefán sigurvegarar í söngkeppni FMOS!
Í kvöld fór fram Söngkeppni FMOS og tóku tvö atriði þátt í keppninni. Sigurvegarnir voru Margrét Saga og Stefán Valgeir sem fluttu frumsamið lag fyrir áhorfendur. Keppnin var haldin á Hvíta Riddaranum og þar var hægt að kaupa sér að borða á meðan á keppninni stóð. Margrét og Stefán taka svo þátt fyrir hönd FMOS í söngkeppni framhaldskólana sem fer fram seinna á önninni. Þau Jóhann Dagur, Ylfa Rós og Daníel sem voru einnig með frumsamið lag stóðu sig líka frábærlega.
Lífið hér í Fmos.
Keppendur FMOS 2011
Kæru FMOS-ingar
Síðasliðinn 23.Janúar lauk skráningunni í undankeppni söngvakeppninnar. Það voru nokkrir sem skráðu sig og ætla að syngja fyrir okkur í næstu viku þann 8 Febrúar. Viljum sjá sem flesta en fleiri upplýsingar verða um keppnina síðar…
Í vikunni mun líka vera myndataka fyrir þá sem vilja og munu myndirnar koma hér inná síðuna sem mun breytast á næstu vikum.
Við auglýsum myndatökurnar betur í vikunni.
Fjölmiðlanefnd
Formaður nffmos í hnotskurn
Formaðurinn okkar heitir Margrét Saga Gunnarsdóttir og er nemandi á öðru ári í FMOS. Margrét er fædd og uppalin á Akranesi en bjó í nokkur ár í danmörku og var í nemendaráði í skólanum sínum þar. Hún er fædd 2. Júní árið 1994 sem gerir hana að 17 ára gamalli stelpu sem verður 18 ára í ár. Margrét var í öðrum af grunnskólunum á Akranesi fyrstu 4 ár skólagöngu sinnar og fluttist þá til Danmerkur en fluttist síðan aftur til Akraness og var þá í sama skóla frá 8. Bekk og allt uppí 10. Bekk. Margrét lagði svo leið sína í FMOS strax eftir að hún kláraði grunnskóla, sem var á skjön við flesta sem voru með henni í árgang.
Margrét vinnur á Subway á Akranesi og hefur unnið þar í þónokkurn tíma með skólanum og líkar henni vel þar.
Margrét hefur verið í sambandi með Hafþóri Daða (sem er einnig í FMOS) í rúm 2 ár og vitum við ekki betur nema allt blómstri þar. Hún æfði söng og hafði gert í fjölda mörg ár og hefur sungið á hinum ýmsu viðburðum, alveg frá því að ég man eftir Margréti hefur hún alltaf heillast af tónlist. Margrét er hvetjandi og gerir það sem hún ætlar sér og lætur sko ekki aðra valta neitt yfir sig, samt sem áður er hún algjört ljúfmenni og afskaplega tillitsöm.
Margrét hefur staðið sig með prýði sem formaður og vona ég að ykkur líki jafn vel við hana og mér, því að hún er manneskja sem vert er að kynnast og hlusta á.
Alexandra Hlíf
Undankeppni fyrir Söngkeppni framhaldsskólanna!
Nú fyrir skemmstu síðan var sett upp skráningablað í FMOS fyrir undankeppnina, sem er haldin til að skera úr um hver fer fyrir hönd skólans í Söngkeppni framhaldsskólanna á Íslandi sem verður haldin á Akureyri í ár (eins og flest önnur ár). Söngkeppninn hefur verið mikill stökkpallur seinustu ár fyrir upprennandi söngvara á framhalsskólaaldri á Íslandi og hafa alltaf verið stórglæsileg verðlaun í boði fyrir vinningshafa keppninar. Ef þú telur þig hafa það sem þarf til að vinna undankeppnina og vonandi vinna svo Söngkeppni framhaldsskólanna í framhaldi að því endilega skráðu þig þá! Skráning í undakeppnina okkar líkur 23. janúar og verður undankeppnin haldinn 9. Febrúar 2012.
Það má finna skráningarblöð á fyrstu og annari hæð uppí FMOS ☺
Kveðja ykkar uppáhalds nemendaráð!
Úrslit úr Gettu Betur
Í kvöld fór fram fyrri umferð í Gettu Betur. Fmos keppti við Menntaskólann á Laugarvatni og endaði keppnin 10-5 fyrir ML.
Liðið skipaði Sunna Mary, Freyr Karel og Sigríður Lóa.
Því miður fóru úrslitin ekki eins og við vonuðumst til en liðið stóð sig samt sem áður vel.
NFFMOS







